|
|
24.10.2010 21:40:29 / Harpa
ég sit í makindum mínum heima hjá mér með lindu mína við hliðina á mér
»
26.10.2007 00:13:11 / Harpa
einsog flestir vita er ég flutt til grindavíkur og er að vinna í sjoppu á kvöldin og reyna að fá vinnu á leikskóla herna ég tók laugarvegsrúnt, hulda var frammí, anna og karen voru afturí, þvið sáum fólk sem við þekktum frá vestfjörðum og viti menn ég keyrði atftaná bíl á laugaveginum!!! pallbíl takk fyrir og auðvitað kíkti ég ít og á bílana og viti menn ég gat gert mig að fílfi á laugarveginum en það gat ekkert komið fyrir, ég á ekki að vera með bílpróf það er alveg komið á hreint, seinna um kvöldið þegar ég var búin að skutla önnu mariu heim, var ég stoppur og geggjað hott lögregluþjónn kom og talði við mig, og spurði mig hvort ég væri með æfingarakstur og eg bara haaa nei og skildi ekki neitt í neinu fyrren hulda sprakk ur hlátri og horfði á mig... þá hefðu stelpurnar sett æfingaraksturs merki á bílinn minn sem við tókum af bíl niðrá laugarvegi, og ég greiið þurfti að plata lögguna og seija henni að litla frænka mín væri í æfingarakstri á bílnum mínum og hefði bara gleymt að taka merkið af... en svo bað hun um ökuskirteinið mitt og ég fann það ekki í veskinu mínu og fór í panikkkkkk og bara sagði ég á tvö sko og fattaði nátturulega ekki að ég má ekki eiga þau bæði, en nei hann skipti sér ekkert af því og bað þá um kort, svo fann hulda eitt í bílnum mínum og lét hann fá og hann hló af mér hvað það eru ólíkar myndirnar, en já þannig er lífið mitt búið að vera eintóm vandræði og kjánalæti en já nóg af bulli í bili....
»
08.10.2007 12:56:54 / Harpa
hey http://meemee-crew.bloggar.is er það ekki málið eða?????
»
11.09.2007 22:54:58 / Harpa
jæja fyrir nokkru fór ég til læknis (eða í síðasta mánuði) og hélt að ég væri komin með sýkingu í tönn, eða e-r staðar þar og læknirinn sagðist ekkert geta gert og sagði mér að fara og panta mér tíma hjá tannlækni og bablaði bara um hálskirtla... ekki alveg það sem ég vildi heira svo ég fór bara aftur heim en pantaði mér tíma hjá tannlækni sem sá ekki neitt, en sá skemdir i 4 tönnum og gerði við eina þá, svo átti ég pantaðan tíma aftur 10 sept og fór í hann, hun sá ekkert frekar um neina sýkingu og gerði við tönn numer 2, komst ekki yfir meira því ég átti að fara í endajaxlatöku, á nærstu hæð fyrir neðan, ég var deyfð mjög mikið og fann ekki fyrir miklu nema þrístingi, fyrsta tönnin var vond, þangað til cleenic-daman hjálpaði mér aðens við að þola þristinginn, talaði og talaði um að anda djúpt, þannig að tennirnar í efrigóm voru ekkert mál, svo var komið að því að tala tönnina vinstramegin í neðrigóm, þegar hann kom við hana öskraði ég það var svo vont og hann ýtti greinilega e-r af stað og ut byrjaði að koma gröftur!!! ekki gott, nema það að það sem hann faðir minn hafði haldið framm að það væri e-ð í gangi í þessari tönn var svo rétt, það tók 3falt meiri týma að taka þessa tönn miðavið hinar 3, nuna er ég uppdópup af sýkla/fúkka lyfjum, verkjatöflum og sterum, og lýður ömurlega, það er að ganga e-r pest í vinahópnum karen er búin að vera ónýt í 2 daga bara með hita og leiðindi og nuna er ég komin með hita og lýður alls ekki vel en ég ætla að fara út og láta koma smá kalt á mig því ég er að kafna ur hita!!! og svo bara góða nótt, ég mæli með því að enginn kæmi nálagt mér svo hann smitist nu ekki, kemur í ljós á nærstu dögum hvort þetta sé smitandi því Hulda og Anna Maria hittu mig i dag svo kanski verða þær veikar á morgun.... eða hinn hver veit....
»
07.09.2007 18:01:20 / Harpa
jæja ég vaknaði um 9 í morgun með þennann brjálaða hausverk og magapínu, fór frammút reyndi að borða e-ð sem gekk ekki vel... þannig að ég hryngdi i vinnuna og sagðist ekki koma, ekkert mál með það en svo kom matta frænka hingað, og þá var síminn minn orðinn batterislaus og fullt af fólki orðið smá smeikt um mig... einsog það hefði e-ð skeð en nei ég er bara hér heima samt nær dauða en lífi, og sandra kom og náði í símann minn er að hlaða hann, og allt í góðu. nema hann neró minn er í e-r fýlu og vill ekki borða neitt nema NAMMI er í e-r frekjukasti sem er reyndar ekki að virka hjá honum... en þó svo hann sé í fýlu útí mig þá er hann alltaf jafn hress að hitta mig og er alltaf hjá mér, en ég er að spá í að fara leggja mig, svo blog out....
»
01.09.2007 17:13:42 / Harpa
Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng.Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín"Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.Hún fór fljótlega.Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta."Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana".Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei""Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur.Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín""Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í.Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.Var þetta fjölskylda litla stráksins?Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag,erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum. Núna hefur þú 2 kosti: 1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir. 2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjartað þitt. Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess að keyra drukkinn.
»
14.08.2007 00:13:06 / Harpa
jæja þá er komið vetrarplan á bensínstöðinni,
og ég er bara að vinna á kvöldvöktum það sem eftir er nema ef
það vantar á morgunvaktina, en já allavegana ég fer í frí á
föstudaginn og mun þá leið liggja til reykjarvíkur, á
menningarnótt/afmælið hans sigga brósa kemur allt í ljós hvað
skal gera... en já ég veit ekki hvað ég á að seija meira, en
ég ætla bara að fara að sofa með hann Friðfinn litla hérna
hjá mér og býð góða nótt...
»
07.08.2007 00:29:28 / Harpa
ohh að vera ein heima er ekkert spennandi, en
nuna er þetta himnaríki, það er ekkert hljóð nema svo heima
hljóð, afskaplega þæjinlegt, ég er ekkert búin að blogga af
því að vinnan er búin að vera geðveiki og ég satt að seija
man ekki eftir fríunum mínum, en já ég veit ekki alveg hvað
ég á að seija, því mér finst ég ekki vera búin að gera neitt
af viti, þegar ég kom heim ætlaði ég að skipta um dekk á
bílnum mínum og taka lakkið í gegn en ég bara einfaldlega
nennti því ekki, en mamma og pabbi koma heim á morgun og þá
er friðurinn úti og ég þarf að fara aftur í vinnuna einsog
alla daga og allan mánuðinn, svo var hann að bjóða mér aðra
stöðu, í september ætlar hann Arnar yfirmaður að reyna
taka sér sumarfrí og bað mig um að taka við hans stöðu ég
svaraði ekki játandi en þetta er eithvað sem ég þarf að hugsa
mig vel um, en nuna er ég að hugsa um að fara gera e-ð annað
en að blogga, þetta er ekki alveg að fara mér vel að vera í
þessum bloggheimi, en allavegana góða nótt og ég vil komment
á þetta vinnu tækifæri!!!
»
01.08.2007 18:00:54 / Harpa
það verðu ekki merkilegra en þetta, ég hef
bara ekkert að seija svo blog out....
»
25.07.2007 01:02:13 / Harpa
jæja stelpur ég ætla að svara ykkur með
bloggi, vildi að ég gæti gert það í svona flottri rímu en
nei..... og hér kemur það... tataaaa...
sko stelpur mínar, ég er ekki bara að hugsa um
mig, sko 2-3 herb, 2 svefnherbergi ef sandra ætlar ekki að búa hjá
mér líka og 3 ef pabbi og sandra ætla að búa hjá mér... sko pabbinn
minn getur ekki labbað upp stiga og þess háttar lengur útaf því að
í slysinu sem hann lenti í fyrir 10-12 árum, hann fótbrotnaði svo
illa að hann hefur litið sem ekkert geta notað vinstri fótinn og
nuna eftir öll þessi ár á því að hlífa foot vinstri er hann
eiginlega bara búin að skemma hné á foot hægri.. ekki alveg nógu
gott, en mamma mín og pabbi eru ekki að skilja eða neitt svoleiðis,
hann rekur bara fyrirtæki og þarf að hafa samastað á ísafirði ef
hann skyldi þurfa að fara keyra þar, en já þetta átti að vera
geggjað langt, leit þannig út áðan áður en ég stækkaði stafina ur 8
pt letri en ég er svo kúkt þreytt var að koma heim ur vinnunni og
er búin að vinna síðan 7:30 í morgun að ég er farin að sofa góða
nótt, og sandra mín hlakka til að fá þig heim!!! það bíður þín
spennandi hlutur heima hjá þér
»
19.07.2007 02:45:20 / Harpa
jæja ég er í smá klípu nuna, ég er í 3
vinnum og er ekki alveg í góðum málum með það, þarf að hætta
í einni á morgun sem er reyndar ekki með neinni
skuldbindingu, en já mig vantar íbúð á ísafirði á jarðhæð með
2-3 svefnherbergjum, og það helst í gær, ekki alveg að gera
sig að vera í 2 vinnum á ísó og eiga heima á þingeyri, á ekki
alveg pening til að keyra svona á milli. en þó nuna er ég
komin uppí rúmm hjá systir minni ( henni Söndu ) sem er
reyndar svo geggjað upptekin af tölvunni sinni að það er
ekkert venjulegt en einsog flestir sem skoða þetta hafa tekið
eftir er að ég er eiginlega ekkert búin að blogga neitt
geggjað lengi, hef bara einfaldlega ekki haft neinn tíma til
að vera í tölvunni það er alltaf e-ð merkilegra hægt að gera,
en here i am, komin aftur í tölvuna og á einlæga msnið sem
ekki eru margir inná... ekki nema von klukkan er að verða 3
og ég held að ég hætti þessu bulli og fari bara að
sofa
en endilega ef þið vitið um e-r íbúð á jarðhæð
til leigu á ísó endilega látið mig vita eða þá með
lyftu...
góða nótt :*
»
28.06.2007 22:53:17 / Harpa
sko um helgina eru dýrafjarðardagar og þá
verður mikið fjör ekki mikið meira um það að seija
lélegt blogg!!!
»
22.06.2007 13:31:32 / Harpa
ég var tekin og læt meira koma
í ljós seinna allavegnana vorum við, ég og nýjibíllinnm í ágætum
samræðum við lögregluna í gær
»
11.06.2007 00:01:57 / Harpa
jæja ég er með heimilislaust dýr hjá mér,
hann heitir patton, hann er voðalega góður gutti en ekki
alveg mín típa, ef svo má seija, ég ákvað að vera smá góð við
hann í dag, leifði honum að vera hjá mér í fanginu á meðan ég
var að horfa á e-r mynd honum fanst það voðalega gaman og
talaði mjög mikið allt í góðu með það, ég og martina fórum að
elda fyrir þessa leiðindar kalla sem eru að vinna fyrir vísi
og nei viti menn við biðum í 1 klt eftir þessum mönnum í mat
urr ekki sáttar og svo þegar þeir komu í mat kl 9 þá bað einn
um herbergi, þá bættist í hópinn 2 kallar og einn fór, þetta
fór ekki vel í martinu og því síður í mig, en neinei ég fór
svo að´horfa á boston legal og ákvað að leyfa patton að vera
hjá mér og hann var svo góður kúrði sig í peysuna mína en svo
ákvað vinur minn hann patton að PISSA á mig og ekkert lítið
og ég var voðalega súr og kunni ekki alveg við það að bara
leifa honum að pissa á mig en ég gat heldur ekki tekið hann
upp, ég vildi ekki fá pissa á hendurnar á mér, ohh en ef það
er e-r sem langar að eignast gæludýr, semsagt hann patton
endilega commenta, já og patton er naggrís....
ömurlegur dagur hjá pabba í dag, hann fór í
baldur að ná í e-r hóp á nánast nýjum bíl sem hann var að ná í,
bíllinn var að koma ur viðgerð og á leiðinni niður af
hrafnseyrarheiðinni losnaði e-r slanga sem er fyrir kælirinn á
túrbínunni eða e-ð og þar með með var bíllinn bilaður, og hann
pabbi gamli var ekki avleg sáttur, þessi bíll kom bilaður til
íslands, og svo bilaður af verkstæðinu... skil ekki alveg svona
vinnubrögð og ekki alveg svona bílafyrirtæki sem selur bilaðan
bíl... ekki alveg sátt.
en já ég fór á ísó á föstudaginn og var ég
ekki bara komin í hóp áhorfenda skotárasa e-ð, allavegana þá skaut
maður í átt að konunni sinni með haglabissu eða e-ð og þvílík læti
varasérsveitin var kölluð á svæðið, sem sagt ekki Drekinn og co
heldur borgar pakkið... og það tók sko borgar liðið sinn tíma í að
koma sér að húsinu til að ná í manninn og svo þegar þeir loksins
komu að húsinu kom kallinn bara út einsog hann hafði ekkert annað
að gera... alveg rusalegt rugl...
en já þetta er eiginlega komið í of langt blogg
frá mér svo ég býð bara góða nótt...
»
06.06.2007 01:14:18 / Harpa
jæja þá hefur Blómarósin okkar
yfirgefið lífið á jörðinni, Hún Guðbjört Lóa, Blómarósin okkar
lést síðdegis í gær 4. Júní í rúmi sínu á Lindargötunni í
íbúðinni sem þau höfðu þar, elsku Lóa mín vonandi líður þér
betur þar sem þú ert núna á flullri leið til himna, ég vil votta
fjölskyldunni hennar og öllum nánustu ættingjum samúð mína, þín
verður sást saknað, hvíldu í friði elsku lóa mín
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 46893
|